.jpg)
Grænkerið
Velkomin í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum og reynt að setja fram lausnir við hversdagslegum vandamálum á jákvæðan hátt.
Eva Kristjánsdóttir stýrir hlaðvarpinu en hún hefur verið vegan í 9 ár. Hún stofnaði Grænkerið með það að markmiði að skapa vettvang sem styður við grænkera á sinni vegan vegferð og minnir þau á að þau séu ekki eina vegan fólkið á landinu.
Grænkerið
Er hægt að ná árangri í líkamsrækt á vegan mataræði? - Áslaug Guðný Unnsteinsdóttir einkaþjálfari
Í þættinum ræðir Eva við Áslaugu Guðný Unnsteinsdóttur einkaþjálfara um allt sem viðkemur vegan líkamsrækt. Við förum yfir raunhæfar væntingar til mataræðis og þjálfunar og reynum að svara eftirfarandi spurningum:
- Er hægt að telja macros á vegan mataræði
- Hvaða næringarsjónarmið þarf vegan fólk í líkamsrækt að spá í
- Hvaða vegan matur er próteinríkur og hvernig er hægt að koma honum inn í máltíðir dagsins
- Fæðubótaefni -þurfum við þau?
Þetta og meira til finnur þú í þættinum og nánari upplýsingar má finna á samfélagsmiðlum Grænkersins.
Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á follow eða subscribe á þinni hlaðvarpsveitu. Þannig heldur appið utan um gamla og nýja þætti og hjálpar í leiðinni hlaðvarpinu að ná til fleirri hlustenda. Þú ræður en takk samt!
Intro: Promoe - These walls don't lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.