.jpg)
Grænkerið
Velkomin í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum og reynt að setja fram lausnir við hversdagslegum vandamálum á jákvæðan hátt.
Eva Kristjánsdóttir stýrir hlaðvarpinu en hún hefur verið vegan í 9 ár. Hún stofnaði Grænkerið með það að markmiði að skapa vettvang sem styður við grænkera á sinni vegan vegferð og minnir þau á að þau séu ekki eina vegan fólkið á landinu.
Grænkerið
Aktívismi og kulnun með Huldu Tölgyes
Hulda Jónsdóttir Tölgyes, sálfræðingur, grænkeri og aktivisti kom í viðtal í Grænkerið og ræddu þær Eva um hvernig aktivismi hefur áhrif á geðheilsu þeirra sem hann stunda.
Í þættinum köfum við ofan í:
- Aktivisma, bæði í vegan skilning og í stóra samhenginu
- Hvað aktivistar geta gert til að hlúa að sér
- Hvernig við hin getum stutt við aktivista
Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á follow eða subscribe á þinni hlaðvarpsveitu. Þannig heldur appið utan um gamla og nýja þætti og hjálpar í leiðinni hlaðvarpinu að ná til fleirra. Þið ráðið, takk samt!
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.